Skilyrði og Skilmálar

Upplýsingar um fyrirtækið

 

LovaIceland

lovaiceland@lovaiceland.is
S. 8676060

Ábyrgðaraðili: Flame ehf

Lova Iceland áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. LovaIceland ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá LovaIceland til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda eða sendingarfyrirtæki sé sending tryggð. Hægt er að greiða 590 kr. fyrir rekjanlegt bréf. Frí heimsending er á pöntunum 14.000 kr og yfir nema annað komi fram í lýsingu eða á sérstökum tilboðsdögum.

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti beint heim að dyrum. 

Að skipta og skila vöru

Veittur er 30 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneigninarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46 z</2000 og laga um neytendakaup.

 

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

 

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur. 

Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.


# Skilmálar LOVA VIP SMS-klúbbsins
Með því að skrá þig í LOVA VIP SMS-klúbbinn og veita sérstakt samþykki fyrir SMS-markaðssetningu samþykkir þú að fá markaðsskilaboð frá Lovaiceland í það farsímanúmer sem þú skráir. 
*Hvað færðu?* Meðlimir VIP-klúbbsins geta fengið sérstök tilboð, afsláttarkóða, upplýsingar um nýjar vörur, forskot á valdar vörukynningar og litla glaðninga frá Lovaiceland. 
*Tíðni skilaboða* Við stefnum að því að senda að jafnaði 1–4 SMS á mánuði. Fjöldi skilaboða getur verið breytilegur, til dæmis í tengslum við sérstakar herferðir.
*Skráning og samþykki* Skráning í SMS-klúbbinn er valfrjáls. Samþykki fyrir SMS-markaðssetningu er aðskilið frá þátttöku í leikjum, kaupum og öðrum samskiptum við Lovaiceland. 
*Afskráning* Þú getur hvenær sem er hætt að fá SMS með því að nota afskráningarhlekkinn sem fylgir skilaboðunum. Afskráning hjá LOVA Iceland er þér að kostnaðarlausu. Venjulegur kostnaður samkvæmt gjaldskrá fjarskiptafyrirtækis getur átt við eftir aðstæðum.
*Meðferð persónuupplýsinga* LOVA Iceland notar farsímanúmer þitt og upplýsingar um samþykki til að halda utan um SMS-áskriftina og senda þér þau skilaboð sem þú hefur samþykkt að fá. Við notum þjónustuaðila, þar á meðal Orvono, til að halda utan um og senda skilaboðin. Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga, réttindi þín og samskiptaleiðir má finna í persónuverndarstefnu LOVA Iceland.
*Breytingar* Lovaiceland getur uppfært þessa skilmála. Ef breytingar hafa veruleg áhrif á samþykki þitt verður óskað eftir nýju samþykki þegar þess er þörf.


## SMS-markaðssetning og LOVA VIP-klúbburinn
LOVA Iceland býður viðskiptavinum og öðrum áhugasömum að skrá sig sérstaklega fyrir SMS-markaðssetningu.
Við skráningu kunnum við að safna farsímanúmeri, nafni ef það er gefið upp, dagsetningu og tíma samþykkis, skráningarleið og upplýsingum um stöðu áskriftar.
Tilgangur vinnslunnar er að senda þeim sem hafa veitt samþykki upplýsingar um tilboð, afslætti, nýjar vörur og aðrar markaðsherferðir Lovaiceland. 
Lagagrundvöllur vinnslunnar er samþykki viðkomandi. Við notum Shopify til að halda utan um viðskiptavinaupplýsingar og skráningarform og Orvono til að halda utan um markaðslista og SMS-sendingar. Þessir þjónustuaðilar kunna að vinna persónuupplýsingar fyrir okkar hönd samkvæmt viðeigandi samningum. Persónuupplýsingar kunna að vera unnar eða varðveittar utan Evrópska efnahagssvæðisins eftir því hvaða þjónusta er notuð. Þegar slíkt á sér stað skal tryggja viðeigandi verndarráðstafanir samkvæmt gildandi persónuverndarlöggjöf.

Þú getur afturkallað samþykki þitt hvenær sem er með afskráningarhlekk í SMS-skilaboðum eða með því að hafa samband við Lovaiceland í tölvupóst. Afturköllun samþykkis hefur ekki áhrif á lögmæti vinnslu sem fór fram áður en samþykkið var afturkallað. 

Við varðveitum upplýsingar um SMS-áskrift meðan hún er virk og eftir afskráningu aðeins að því marki sem nauðsynlegt er til að virða afskráningu, sýna fram á samþykki eða uppfylla lagalegar skyldur. Þú átt rétt á að óska eftir aðgangi að persónuupplýsingum þínum, leiðréttingu þeirra, eyðingu eða takmörkun vinnslu eftir því sem lög heimila.

Elliblettirnir mínir eru að hverfa

Elliblettirnir mínir eru að hverfa

Elliblettirnir mínir eru að hverfa

Rósroðin hvarf hjá mér á nokkrum vikum.

Rósroðin hvarf hjá mér á nokkrum vikum

Rósroðin hvarf hjá mér á nokkrum vikum

Ég er búin að finna það sem ég þarf

Það besta sem hefur virkað á bólurnar

Það besta sem hefur virkað á bólurnar

Ég hef alltaf sett mikið meik yfir blettinn til að fela hann

Ég hef alltaf sett mikið meik yfir blettinn til að fela hann

Ég hef alltaf sett mikið meik yfir blettinn til að fela hann

Ég er búin að finna það sem ég þarf

Ég er búin að finna það sem ég þarf

Ég er búin að finna það sem ég þarf

Það vottar ekki fyrir þurrk lengur

Húðin var eins og þurrt fiskiroð en svo prufaði ég C Vítamín kremið

Húðin var eins og þurrt fiskiroð en svo prufaði ég C Vítamín kremið

Stákurinn minn er allur annar

Strákurinn minn er allur annar

Strákurinn minn er allur annar

Fann strax mun

Fann strax mun á þurrk eftir fyrstu notkun

Fann strax mun á þurrk eftir fyrstu notkun

Tók aðeins 3 sólahringa að sjá árangur

Tók aðeins 3 sólahringa að sjá árangur

Tók aðeins 3 sólahringa að sjá árangur

PSORIASIS ÁRANGUR ÚT FRÁ C VÍTAMÍN KREMINU

Psoriasis hjá honum var nánast horfið viku eftir notkun af C vítamín kreminu

Psoriasis hjá honum var nánast horfið viku eftir notkun af C vítamín kreminu

Það sést stór munur á andlitinu á mér!

Það sést stór munur á andlitinu á mér!

Það sést stór munur á andlitinu á mér!

Exem og blettur nánast horfið

Ég var með svæsið exem og brúnan blett sem er að hverfa

Ég var með svæsið exem og brúnan blett sem er að hverfa

Þessar vörur hafa bjargað húðinni minni!

Þessar vörur hafa bjargað húðinni minni!

Þessar vörur hafa bjargað húðinni minni!

GÓÐ ÁHRIF Á SPRUNGNAR ILJAR!

Kremið hefur góð áhrif á sprungnar iljar!

Kremið hefur góð áhrif á sprungnar iljar!

ÉG HEF ÖÐLAST NÝTT LÍF

Ég hef öðlast nýtt líf!

Ég hef öðlast nýtt líf!

Húð og haust

Húð & Haust

Húð & Haust

Hafra og Ólífuolíu bað

Hafra & Ólífuolíu bað 🤍

Hafra & Ólífuolíu bað 🤍