„Ég hef ekki tölu á því hvað margar tegundir ég hef prófað“
Saga Rúnars Þórs Guðmundssonar
Kæru vinir,
Rúnar Þór Guðmundsson heiti ég og hef barist við psoriasis í um 20 ár.
Á þeim tíma hef ég farið í gegnum ýmislegt. Tvisvar sinnum var ég lagður inn á Landspítalann í tvær vikur í senn þar sem ég fór í böð, ljósameðferðir og ýmis önnur úrræði sem reynd voru.
Ég var lengi mjög slæmur en fékk að lokum líftæknilyf sem breyttu miklu fyrir mig. Það ferli tók hins vegar mörg ár.
En þó að maður fái góða meðferð þá breytir það ekki því að maður þarf alltaf að hugsa um húðina. Ég hef þurft að nota krem á sár og hreistur í gegnum árin og ég hef hreinlega ekki tölu á því hvað margar tegundir ég hef prófað.
Það fylgir líka svona sýnilegum kvilla að allir virðast vita hvað maður á að gera og hvaða krem maður á að nota. Flestir hafa einhver ráð eða lausnir sem eiga að virka.
Tilviljun sem breytti miklu
Fyrir algera tilviljun þurfti ég einn daginn að sækja lyf á Selfossi.
Á meðan ég beið ákvað ég að kíkja inn í Veiðibúð Suðurlands. Þar var yndisleg kona sem tók eftir því hvernig hendurnar á mér voru. Hún gaf mér prufur af C Vítamín kreminu og CBD olíunni og sagði mér að prófa.
Ég fór heim og prófaði. Og viti menn.
Þetta var allt annað en ég hafði prófað áður. Reyndar fór ég daginn eftir og keypti mér stærri skammt.
Munurinn kom fljótt í ljós
Það tók mig ekki langan tíma að sjá breytingar.
Eftir um tvær vikur var ég farinn að finna greinilegan mun á húðinni og mér leið betur með hana.
Það var sérstaklega ánægjulegt eftir öll þessi ár af tilraunum með alls konar vörur sem lofuðu miklu en skiluðu litlu.
Komnir á Lova-vagninn
Í dag nota ég vörurnar áfram og mun svo sannarlega halda því áfram.
Sonur minn er líka með psoriasis og hann er kominn á Lova-vagninn með mér. Það segir kannski meira en mörg orð.
Verðin eru góð, vörurnar frábærar og ég er virkilega ánægður með að hafa rekist á þær fyrir þessa hreinu tilviljun þennan dag á Selfossi.
Áfram gakk, LovaIceland.
Frásögn: Rúnar Þór Guðmundsson.
Húðvörur Lovaiceland