Banner Image
Banner Image

VELKOMIN TIL LOVAICELAND 🤍 Þar sem heimurinn mætir Íslandi í húðumhirðu.

Lovaiceland var stofnað árið 2017 með skýra framtíðarsýn: að bjóða upp á vandaðar og áhrifaríkar húðvörur á verði sem gerir góða húðumhirðu aðgengilega.

Frá upphafi höfum við ferðast um heiminn, sótt stærstu húðvörusýningar og leitað að spennandi innihaldsefnum, nýjungum og formúlum. Sú þekking hefur mótað Lovaiceland og þær vörur sem við þróum í dag.

Banner Image
Banner Image

Við vinnum náið með sérhæfðum teymum og framleiðendum í Asíu og Evrópu að þróun okkar eigin vara og formúla – með áherslu á gæði, virkni og góða upplifun.

ÍSLENSKT VÖRUMERKI. ALÞJÓÐLEG ÞEKKING.

Metnaður okkar er að blása lífi í íslenskan húðvörumarkað með vörum sem sameina gæði, nútíma húðumhirðu og aðgengilegt verð.

Lovaiceland er í dag að finna í verslunum víða um land og erlendis – og samfélagið okkar heldur áfram að stækka með hverju árinu.

Banner Image
Banner Image

OKKAR LOFORÐ 🤍

Við leggjum áherslu á vandaðar formúlur og húðvörur sem við sjálf viljum nota. Vörurnar okkar eru án parabena og ekki prófaðar á dýrum, og við vinnum stöðugt að því að þróa nýjar og spennandi lausnir fyrir ólíkar þarfir húðarinnar.

Við bjóðum þér að vera hluti af þessu spennandi ferðalagi með okkur, þar sem hver dropi endurspeglar áralanga þekkingu, þróun og nýsköpun. 🤍

Banner Image
Banner Image

NAFNIÐ OKKAR — LOVAICELAND

LOVA stendur fyrir baráttu og loforð.

Loforðið okkar er einfalt: að gera góða húðumhirðu aðgengilega og skapa vörur sem fólk elskar að nota – aftur og aftur. 🤍

Banner Image
Banner Image