Ég finn ekki einn einasta þurrkublett í andlitinu lengur
Húðin okkar segir oft sögu sem enginn annar sér.
Hér deilir Ingibjörg sinni reynslu – frá viðkvæmri, þurrri húð yfir í mýkt, ró og nýtt sjálfstraust 🤍
🤍 Viðkvæm húð í mörg ár
Ég hef alltaf verið mjög viðkvæm í húðinni.
Þurrir blettir sem mynduðu hrúður og voru lengi að gróa voru hluti af mínu daglega lífi.
Ég reyndi nánast allt, bæði náttúruleg smyrsl og lyfseðilsskyld lyf.
Ég prófaði meira að segja að taka út sykur og hveiti úr fæðunni í von um að það myndi hjálpa.
Skúffan mín fylltist af alls konar vörum sem áttu að virka… en ekkert gaf mér raunverulegan árangur.
Þykk smyrsl og kókosolía gerðu lítið annað en að skemma koddaverin mín 😄
✨ Fyrstu kynni af Lovaiceland
Ég kynntist Lovaiceland í gegnum mágkonu mína sem var að nota vörurnar og talaði vel um þær.
Það vakti forvitni mína og ég ákvað að prófa.
Ég keypti mitt fyrsta krem fyrir um 3 mánuðum síðan. Mjög fljótt fann ég hvað húðin varð mýkri. Í dag finn ég ekki einn einasta blett í andlitinu.
Ég hef verið að nota:
- Retinol Jojoba Andlitsolíu
- Retinol Næturkrem
Þessar tvær vörur hafa gjörbreytt húðinni minni.
Ég er líka með svipað vandamál á fótleggjunum og langar að prófa að nota skrúbb, hanska og olíu þar og ég er spennt að sjá hvort sömu áhrif náist.
Ég hef alltaf verið mjög viðkvæm eftir bað og sund. Ég þarf nánast alltaf að bera á mig strax eftir, annars fæ ég mikinn kláða og tilfinningu eins og húðin sé að herpast saman.
Ég mun klárlega halda áfram að nota vörurnar frá Lovaiceland. Og ekki spillir verðið. 🤍 Ég finn ekki einn einasta blett lengur í andlitinu.
Frásögn: Ingibjörg Ólafsdóttir
Húðvörur Lovaiceland